Mismunadrif
Í jeppa er mismunadrif í bæði fram- og afturhásingu en auk þess í millikassa þegar um sítengt aldrif er að ræða. Mismunadrifin sjá til þess að ekki myndist spenna milli hjólanna í beygjum. Á sítengdum aldrifsbíl kemur það einnig í veg fyrir spennu milli fram- og afturhásingar. Mismunadrifin gera m.ö.o. hjólunum kleift að snúast á misjöfnum hraða.
Dæmi um ókost mismunadrifa er þegar bíllinn stendur með annað fram- eða afturhjólið á svelli eða lausu undirlagi en hitt á föstu. Við slíkar aðstæður spólar bíllinn á því hjóli sem stendur á svellinu eða lausa undirlaginu vegna þess að minna átak þarf til að snúa því.