Arctic Trucks Island

Dynex tóg

 
Nú þegar er nokkur reynsla komin á þessa gerð tóga sem notuð eru á spil í stað vírs. Dynextógið er 8 mm svert en þolir 7 tonna átak. Það er verulega léttara en stálvírinn. 50 metrar af 8 mm tógi eru einungis 1,93 kg en 30 metrar af 8 mm stálvír 8 kg. Tógið leggst betur á spiltromluna og því kemst mun lengra tóg á hana heldur en vír. Tógið flýtur í vatni sem er mjög hentugt þegar bíll festist í á. Þá er hægt að henda spottanum út í ána og láta hann fljóta niður að bílnum. Það er þægilegra að meðhöndla tógið heldur en vírinn, það er hættuminna og mjög auðvelt að splæsa saman. Gallinn við Dynextógið er sá að það er viðkvæmt fyrir hvössum brúnum, t.d. slæmum krókum og hraungrýti. Við skemmd tapast styrkur þess verulega. Mjög mikilvægt er að ekki komi hnútur á tógið
 

 

 


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir