Arctic Trucks Island

 Ljós og staðsetning

 
 

 

 
Margir jeppaeigendur kjósa að setja aukaljós á jeppana. Þau geta verið með ýmsu móti, allt frá því að vera lítil þokuljós og upp í stóra kastara. Flestir setja ljósin framan á bílinn en þó kjósa sumir að setja þau á toppinn. Við mælum frekar með ljósunum framan á bílnum því reynslan sýnir að toppljós gera oft lítið gagn við íslenskar aðstæður því hér á landi er mikil úrkoma algeng. Í þeim tilfellum lýsa toppljósin hana upp og við það sér ökumaðurinn ekkert frá sér.

Þegar aukaljós eru notuð er í flestum tilfellum best að nota aðeins eitt par í einu og oft er gott að slökkva aðalljósin á meðan. Margir kastarar eru það öflugir að aðalljósin gera hvort sem er lítið sem ekkert gagn ef kveikt er á kösturunum. Gul ljós eru fáanleg í mörgum gerðum kastara. Þau eru mjög hentug við akstur í snjó og skafrenningi því þau auka skerpuna í snjónum. Við val á ljósum er nauðsynlegt að gæta þess að þau sé E-merkt (á ekki við um kastara og leitarljós) sem merkir að þau séu leyfileg hér á landi. Nákvæma lýsingu á leyfðum ljósum og staðsetningu þeirra er að finna í reglugerð um gerð og búnað ökutækja sem áður hefur verið nefnd.
 
 
Helstu gerðir aukaljósa eru:
  • Ljóskastarar sem eru til í nokkrum útgáfum. Þeir eru notaðir þegar skyggni er gott og þörf á að sjá langt fram. Best er að staðsetja þá framan á bílnum, mishátt eftir gerðum, en þær eru: Punktljós, sem hafa grannan geisla og lýsa mjög langt, og flóðljós, sem hafa breiðari geisla og lýsa skemmri vegalengd.
  • Þokuljós eru notuð í slæmu skyggni, þoku, skafrenningi eða byl. Best er að hafa þau framan á jeppanum, eins neðarlega og mögulegt er og láta þau lýsa frekar stutt fram á veginn. Í þeim er geislinn þunnur á
    hæðina en breiður. Vinsælustu þokuljósin eru svokölluð linsuljós sem hafa mjög vel skorinn geisla.
  • Leitarljós eru mikið notuð við ýmsar aðstæður, til dæmis við leit að stikum og öðrum kennileitum. Best er að hafa þau á toppnum þar sem ekkert skyggir á. Mörgum finnst best að hafa þau vinstra megin þannig að hægt sé að láta þau lýsa niður á veginn við hlið bílstjóra. Þeim er stýrt innan úr bílnum.
    Vinnuljós eru dreifiljós sem henta á hliðar og aftan á bílinn þegar verið er að athafna sig við jeppann.
  • Auka-háljós eru ljóskastarar sem eingöngu geta lýst með upphaflegum háuljósum jeppans. Þessi ljós eru staðalbúnaður á mörgum bílum.



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir