Arctic Trucks Island

Myndagallerý »

 

Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í breytingar fyrir Nissan Pathfinder

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.

 



35" breyting

Þegar sett eru 35" dekk undir jeppa er í flestum tilfellum eingöngu þörf á upphækkun á fjöðrun eða bæði á fjöðrun og yfirbyggingu. Við þessa stærð dekkja eru settir nýir brettakantar á bílinn sem breyta útliti hans heilmikið. Bíllinn hækkar tölvuvert en þó ekki það mikið að flestum farþegum finnist hækkunin upp í jeppann til óþæginda. Þessi breyting er mjög góður kostur fyrir þá sem vilja öflugan bíl til fjallaferða að sumri til og aukna drifgetu í snjó.

  • Bíllinn hækkar undir lægsta punkt
  • Mýkri akstur á grófum vegum
  • Aukið flot
  • Útlitsbreyting

Aukahlutir fyrir Nissan Pathfinder:

  • Driflæsing í framhásingu (Dana 44 framdrif og ARB loftlæsing)
  • Auka olíutankur með rofa og dælu
  • Ryðfríar póleraðar grillgrindur með festingum fyrir aukaljós
  • Loftdælusett með slöngu fest í bílinn (rofi, relay 16 Amp)
  • Kastarar KC130W - króm/ryðfrítt (punktljós eða dreifður geisli)
  • Húddhlífar
  • Gluggavindhlífar
  • Ljósahlífar
  • Glugga-, húdd- og ljósahlífar í setti
  • Vindskeið á afturhlera
  • Dráttarbeisli, prófíl með kúlu
  • Negling á dekkjum
  • Toppgrind, langbogar
  • Álkassi í farangursgeymsluna
  • Gólffestingar (2x0,5 m) úr áli með 4 færanlegum festingum
  • Spilfesting að framan
  • Raftengi framan og aftan fyrir spil
  • Spil, Come-Up 9000i (4100 kg)

Kynnu þér nánar aukahlutaúrvalið okkar undir vöruflokkunum hér vinstra meginn á síðunni.

Frekari upplýsingar fást í verslun okkar og í síma 540 4900.



Íhlutir breytinapakkans

  • 35x12,2R17 dekk
  • 17x10" álfelgur
  • Átaksmælir
  • Málaðir brettakantar
  • Gangbretti og gangbrettafestingar
  • Aurhlífar
  • Hraðamælabreytir
  • 40 mm hækkun á fjöðrun framan/aftan
  • Nýjar stífur, hengsli o.fl.
  • Úrklipping úr hjólskálum framan/aftan
  • Slökkvitæki
  • Sjúkrapúði
  • Hjólastilling
  • Sérskoðun
  • Vigtun
  • Arctic Trucks krómmerki á afturhlera




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Vefir